Greiðsluseðill nr. 3

Mistök voru gerð við skráningu þriðju kröfunnar vegna æfingagjalda á vorönn, eindaginn átti að vera í apríl byrjun ekki maí byrjun. Þessu verður EKKI breytt svo að fólki gefst kostur á að greiða þetta um næstu mánaðarmót. Við bendum þó á að sumir óskuðu eftir að skipta greiðslum öðruvísi og áttu að fá síðustu kröfuna um næstu mánaðarmót, þeir aðilar lenda þá í því að fá tvær kröfur í maí. 
Við biðjumst velvirðingar á þessu.