Æfingar hefjast samkvæmt stundatöflu frá og með 7. janúar. Laugardagshópar byrja 12.janúar. Einhverjar breytingar verða í hópum og munum við hafa samband við viðkomandi vegna þess næstu daga. Eins bendum við á að stundataflan gæti breyst eitthvað næstu vikurnar vegna stundatöflu framhaldsskóla en margir okkar þjálfara stunda framhaldskóla.
Ef iðkandi ætlar EKKI að halda áfram á vorönn biðjum við viðkomandi eða forráðamann að senda okkur póst fyrir 3.janúar með úrsögn á netfangið skrifstofa@fimak.is .
Því miður er verðskrá fyrir vorönn ekki klár þar sem félagið hefur ekki enn fengið upplýsingar um rekstarstyrk frá Akureyrarbæ.
Með kveðju, starfsfjólk fimak.