Í dag á vormóti FSÍ í hópfimleikum varð I4 deildarmeistari í 5. flokk. Þær urðu einnig Íslandsmeistarar fyrr í vetur. I5, I6 og I7 kepptu einnig í 5. flokki og hafnaði I5 í 5. sæti (sem er verðlaunasæti), I6 í 10. sæti og I7 í 13. sæti. Strákarnir okkar lentu í 3. sæti í 5. flokk. Þess má geta að þetta er í fyrsta skipti sem við sendum drengjalið til keppni í hópfimleikum og einnig voru bæði I6 og I7 að keppa í fyrsta sinn. Stórglæsilegur árangur hjá þessum hressu krökkum og það verður spennandi að fylgjast með þeim í framtíðinni.
Stjórn FIMAK