Í dag varð FIMAK deildarmeistari í 3. flokki í hópfimleikum. Til hamingju með stórglæsilegan árangur í vetur fyrst Íslandsmeistara titilinn og svo núna deildarmeistarar. Í 4. flokk höfnuðum við í 6. sæti og Mix-hópurinn okkar sem hefur æft í vetur án þess að stefna á mót ákvað að skella sér austur á mótið hafnaði í 3. sæti í opnum flokk. Frábært hjá þeim öllum og við erum afar stolt af þessum árangri okkar krakka. Á morgun keppir svo 5. flokkur.
Stjórn FIMAK