Flýtilyklar
Lög FA
1. gr.
Félagið heitir Fimleikafélag Akureyrar, skammstafað FA. Heimili þess og varnarþing er á Akureyri. Félagið er aðili að ÍBA sem og
FSÍ og ÍSÍ og því háð lögum, reglum og samþykktum íþróttahreyfingarinnar.
2. gr.
Markmið félagsins er að efla framgang fimleikaíþróttarinnar á sem fjölbreyttastan hátt og efla félagsþroska félagsmanna
sinna.
3. gr.
Félagar geta allir orðið sem þess óska og ekki eru aðrar takmarkanir á þátttöku í félagsstarfi en þær sem ytri
aðstæður kunna að hamla.
Meðal annarra geta eftirtaldir orðið félagar:Þeir sem stunda fimleika hjá félaginu.Þeir sem skrá sig í félagið og vilja vinna að markmiðum þess í samræmi við tilgang þess og
lög.Þjálfarar.Styrktarfélagar geta allir orðið sem
þess óska og greiða þá styrktarfélagsgjöld sem aðalfundur ár hvert ákveður. Þeir félagar sem verða 16 ára
á almanaksárinu og eldri hafa kosningarétt og kjörgengi.
4. gr.
Reikningsár félagsins er almanaksárið. Reikningar félagsins skulu skoðaðir og áritaðir af kjörnum skoðunarmönnum félagsins.
Reikningar félagsins skulu vera tilbúnir einni viku fyrir aðalfund.
5. gr.
Stjórn félagsins skal skipuð fimm mönnum kosnum til tveggja ára í senn, þ.e. formanni, varaformanni, gjaldkera, ritara og
meðstjórnanda. Einnig eru kosnir tveir varamenn í stjórn til eins árs í senn. Formaður skal kosinn sérstaklega til eins árs
í senn en að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum. Einnig skal kjósa tvo skoðunarmenn reikninga. Stjórnin getur skipað
starfshópa og/eða nefndir eftir þörfum. Stjórninni ber þá að setja þeim erindisbréf.
Félagsstjórn hefur forgöngu í allri starfsemi félagsins og þótt nefndum eða starfshópum séu falin tiltekin verkefni ber
stjórninni yfirumsjón. Formaður stýrir félagsfundum eða lætur kjósa fundarstjóra og er fulltrúi félagsins út á
við. Stjórn félagsins ber alla ábyrgð og hefur yfirumsjón á fjárreiðum félagsins. Deildum og/eða nefndum félagsins er
óheimilt að efna til fjárskuldbindinga án samþykkis stjórnar félagsins. Á aðalfundi skal jafnframt kjósa fulltrúa á
þau þing þar sem félagið á rétt á þingsetu.
6. gr.
Aðalfund félagsins skal halda fyrir lok marsmánaðar ár hvert. Aðalfund skal boða opinberlega með minnst fjórtán daga fyrirvara.
Verkefni aðalfundar skal vera:Kosning fundarstjóra og fundarritara.Skýrsla stjórnar.Afgreiðsla reikninga, fjárhagsáætlun næsta
starfsárs lögð fram.Lagabreytingar, ef einhverjar eru.Kosningar.Afgreiðsla styrktarfélagsgjalda.Önnur mál.Aðalfundur er löglegur sé löglega til hans
boðað.
7. gr.
Félagsfundir skulu haldnir svo oft sem stjórninni þurfa þykir eða ef fimmtán félagar hið minnsta óska þess skriflega og tilgreina
fundarefnið. Fundur skal boðaður opinberlega með minnst fimm daga fyrirvara og skal þar tilgreina fundarefnið. Félagsfundur telst löglegur sé löglega
til hans boðað.
8. gr.
Lögum félagsins verður aðeins breytt á aðalfundi og þarf breytingartillaga að hljóta ¾ hluta atkvæða fundarins til þess að
ná fram að ganga. Lagabreytingar sem félagsmenn óska að bornar verði upp á aðalfundi skulu sendar félagsstjórn fyrir 31. janúar fyrir
aðalfund. Ber stjórninni að gera grein fyrir slíkum tillögum í fundarboði til aðalfundar. Sama gildir um lagabreytingar er stjórnin kann að eiga
frumkvæði að.
Í desember ár hvert skal velja íþróttamann ársins úr hópi iðkenda hjá Fimleikafélagi Akureyrar, vegna þess almanaksárs sem er að líða. Unnið skal eftir reglum sem hér er að finna þegar valið fer fram.
10. gr.
Stjórn félagsins ber að varðveita öll þau skjöl og önnur gögn sem geyma heimildir um störf félagsins, eignir þess,
nákvæma félagaskrá, reikninga og bréfaskriftir. Einnig skýrslur yfir mót sem félagið tekur þátt í og /eða efnir
til.
11. gr.
Keppnisreglur skulu vera eftir samþykktum Fimleikasambands Íslands.
12. gr.
Stjórn félagsins er heimilt að kjósa heiðursfélaga. Heiðursfélagar geta þeir einir orðið sem sýnt hafa frábæran
áhuga og dugnað í þágu félagsins og unnið að eflingu þess.
13. gr.
Tillögur um félagsslit skulu sæta sömu meðferð og lagabreytingar. Komi til þess að félagið verði leyst upp skulu eignir þess vera
í vörslu Íþróttabandalags Akureyrar og ráðstafar stjórn ÍBA þeim í sem bestu samræmi við þann tilgang og
markmið sem félaginu var sett í upphafi.
Lög þessi taka þegar gildi.
Ákvæði til bráðabirgða:
Þrátt fyrir ákvæði þessara laga um stjórn félagsins og kosningar, skal fyrsta stjórn skipuð (ekki kosin) til bráðabirgða
fram að fyrsta aðalfundi. Bráðabirgðastjórnin skal eins skipuð og kveðið er á í lögum þessum. Á fyrsta aðalfundi skal
gengið til kosninga og kosin stjórn. Þá skal kosið um eftirtalin sæti til eins árs: Formaður og þrír meðstjórnendur en til tveggja
ára: þrír meðstjórnendur.
Uppfćrt: Inga Stella - mán 22.mar 2010
Leit

Nýtt á vefnum
Heimsóknir
Samtals: 311512