Fimleikafélag Akureyrar

Fimleikafélag Akureyrar

Flýtilyklar

Skýrsla Stjórnar 2006

Skýrsla stjórnar.Þetta árið sem önnur hefur starfsemi Fimleikafélags Akureyrar verið að eflast, sífellt fleiri af okkar iðkendum eru að ná mjög góðum árangri á mótum sem tekið er þátt í.Í dag höfum við yfir að ráða 36 tímum í íþróttahúsinu við Glerárskóla, iðkendur eru um 400  í 29 hópum. talsins og þjálfarar eru 36 hjá félaginu. Starf félagsins er margþætt og fjölbreitt markmið gera það að verkum að sem flestir finna sér eitthvað við hæfi innan okkar vébanda.4 til 5 ára hópar æfa einu sinni í viku á laugardögum, aðrir iðkendur eru að æfa á virkum dögum og er þeim skipt uppí A – F – I – K og M hópa. Í A hópum er lögð áhersla á grunnþjálfun, almenna, hópfimleika og dans. F- hópar æfa áhaldafimleika. I og M hópar leggja áherslu á hópfimleika þar sem æfingar á trampólíni, í stökku og dansi er aðal markmið. K – hópar eru svo strákahóparnir okkar og eru þeir þrír.Stjórn FA hefur sinnt hefðbundnum stjórnarstörfum þetta starfsárið og fundað einu sinni í viku á starfstímanum. 

·         Á aðalfundi sl. Vetur gengu úr stjórn Fríða Péturs sem var formaður, Nanna sem var gjaldkeri, Sólveig og Rannveig. Í stað þeitta tóku við Valgerður Vilhelms sem formaður. Aðrir sem komu í stjórn voru Svanhildur Bragadóttir, Andri Teitsson, Katrín Melsed og Friðbjörn Möller.

·         Að loknum aðalfundi hófst undirbúningur á Akureyrarfjöri, og kemur stjórnin að skipulagningu þess.

·         Heimasíða var undirbúinn og henni komið á laggirnar, þetta var þarft verk og hefur bætt allt upplýsingastreymi til foreldra og annar sem vilja fylgjast með starfinu hjá FA

·         20 maí. Var lokasýning vorsýning í höllinni hjá félaginu og var húsfyllir á þá sýningu, gaman að sjá hve mikilli áhugi er fyrir fimleikum. Öllum bæjarfulltrúum og einnig þeim sem voru í framboði til sveitastjórnarkosninga á Akureyri var boðið.

·         Nýr erlendur þjálfari var ráðin til félagsins og heitir hún Ionela Loaice og er frá Rúmeníu. Og hefur hún reynst félaginu happafengur.

·         Starfinu var haldið áfram hjá F-hópum efti vorsýningu og var starfað fram í júní.

·         Tekin ákvörðun um að reyna að koma FA í hóp fyrirmyndafélaga innan tveggja ára. Áhrifin sem það hefur eru af hinu góða þar sem við munum fá vottun ÍSÍ á félagið. Það ætti að auðvelda alla tekjuöflun fyrir félagið.

·         Að hausti ber stjórn ábirgð á því að koma starfi félagsins af stað á nýjan leik, sú vinna hefst raunar á vormánuðum þegar allir þjálfarar eru kallaðir saman og farið er yfir iðkendur og reynt að skipuleggja gróflega í hópa fyrir næsta vetur. Það kemur svo í ljós að hausti hverjar heimtur verða á iðkendum.

·         Í ljósi þess að F-hópar héldu sínu starfi áfram fram í júni kvikknaði áhugi á því að vera með sumarstarf í fimleikum fyrir þá sem það vilja, svona líkt og önnur íþróttafélaög eru að gera til að efla starf sitt. Það starf er á fullu í stjórn félagsins.

·         Húsnæðismál voru í miklum brennideppli þetta árið og auðvelt að herja á pólitíkusa þar sem það var kosningavor. Í byrjun mái lá fyrir loforð um að byggt yrði yfir fimleikana við Giljaskóla og voru settr fram mjög flottar hugmyndir að því verki og skipaður um það vinnuhópur.

·         Það kom svo í los að sú framkvæmd sem átti að leggja í væri of dýr og ekki gerleg og var hún “slegin út af borðinu “ eins og kom fram í vikudeigi skömmu fyrir jól.

·         Þessu tókum við í stjórn FA ekki þegjandi og upp hófst nú heljarinnar stríð sem fór þó ekki mjög hátt en endaði með neyðarfundi sem boðaður var af nýskipuðum bæjarstjóra 17. janúar 2007. Þar óskaði bæjarstjóri þessa að fá frið og reyndi að fullvissa okkur um að ekki væri búið að slá neitt út af borðinu og unnið væri að málinu.

·         Öllum bæjarfulltrúum á Akureyri ásamt fleyrum var boðið í heimsókn í Glerárskóla til að líta á þá aðstöðu sem félagið hefur í dag, allir sammála um að það þurfi að ger hér bragarbót á.

·         Heilbrigðiseftirlitið kom í heimsókn í vetur og setti útá þrengsli og lélegan aðbúnað fyrir krakkana í fimleikum.

·         Jólasýning var haldin í desember og gekk hún vel fyrir sig og eins og á vorsýningu þá var fullt út úr dyrum.

·         Nýr félagsbolur var pantaður á árinu og er hann til sölu á skrifstofu, nýr félagsgalli var einnig tekin í notkun.

·         Klæðnaður á þjálfar er einnig í farvatninu, nú þegar eru þjálfarar félagsins búnir að fá boli merkt til að vera í á æfingum.

·         Þjálfara gallar verða svo til mjög fljótlega og fá allir þjálfara hjá félaginu slíka galla.

·         Vel hefur gengið að afla styrkja fyrir félagið og fengum við 500 þ. Frá KEA. 175 þ frá Kaupþing. 150 þ frá  Landsbankanum. 100 þ frá Glitni, 150 þ frá bónus. Fyrirtæki eru farin að hafa áhuga á að styrkja okkur og er það vel þegið.

·         Fyrir styrktarfé var fjárfest í dýnum, nýri tölvu á skrifstofu og öðrum búnaði sem nýtist félaginu.

·         Akureyrarbær splæsti svo á okkur fiberglassdýnu sem kostaði um 1800 þ. Kr.

·         Í haust hófum við starfið í með heljarinnar grillveizlu að Hömrum sem öllum var boðið á þar voru grillaðar rúmlega 300 pylsur og drukkin svali með. Norðlenska og vífilfell sáu um að styrkja okkur með veitingar fyrir þetta hóf.

·         FA hefur á árinu fengið mjög góða umfjöllun í staðbundnum fjölmiðlum og er það af hinu góða og eikur líkur á því að fyrirtæki vilji styrkja okkur.

·         Í ár hafa elstu stelpurnar hjá FA staðai í því að safna peningum fyrir gymnaströtuferð sem verður mjög skemmtileg lífsreynsla fyrir þær.

·         Enn og aftur var reynt að stofna foreldrafélag og teljum við að nú sé það orðið að veruleika því í febrúar byrjuðum við að hóa saman duglegu fólki til að sinna því starfi og hafa nú þegar verið haldninr nokkrir fundi. Markmið foreldrafélags er að aðstoða stjórn og þjálfara við framkvæmd móta, ferða og annara uppákoma.

·         Á haustdögum var farið í að prófa að vera með fullorðinsfimleika á föstudögum milli 20:00 og 22:00 hefur það reynst afar vel og eru nú tæplega 20 manns skráðir í þann hóp.

·         Þjálfarafundir hafa verið því sem næst einu sinni í mánuði það sem af er þessum vetri. Markmiðið er að þeir verði einu sinni í mánuði hið minnsta. Og mun stjón einnig veita þjálfuruim allan þann stuðning sem mögulegt er að veita á þeim tíma sem starfað er.

·         Florin Paun er nú titlaður yfirþjálfari hjá félaginu og viljum við í stjórn beina því til allara að ef uppi eru einhver álitamál með þjálfun að snúa sér til hans með það sem bjátar á. Ef hann metur það sem svo þá leitar hann til stjórnar. Erla Ormars er aðstoðaryfirþjálfari og hefu einnig sinnt skrifstofu félagsins einu sinni í viku 2 tíma í senn og það er hægt að leita til hennar með það sem bjátar á einnig.

·         Samstarf stjórnar hefur verið mjög gott og ekki undan neinu að kvart þar á bæ.

·         Nú slæ æeg bottnin í þetta en tek fram að ég hef örugglega gleymt einhverju eða einhverjum og vona að því verði ekki tekið illa, því ef ég stoppa ekki hér þá get ég örugglega malað endalaust áfram því á meðan ég er hér að tala man ég alltaf eftir nýjum og nýjum atriðum sem ég gæti minnst á. 


Uppfćrt: Fimak - fim 19.apr 2007

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf

Deildarval

Framsetning efnis