Flýtilyklar
Brauđmolar
Áhaldafimleikar drengja
Áhaldafimleikar stráka
Strákar keppa á sex áhöldum; gólfæfingum, stökki, karlatvíslá, hringjum, bogahesti og svifrá.
Í áhaldafimleikum er keppt í þrepum og var nýr fimleikastigi gefin út 2009 í 6.sinn.
Innihald og samsetningar æfinganna hafa tekið nokkrum breytingum frá fyrrifimleikastiga (2006 – 2009) en almenni hluti hans og dómarareglur eru að mestu óbreytt.
Þrepin eru aldursskipt. Keppandi fær þrep viðurkennt þegar hámarksaldri viðkomandi þreps er náð eða þegar ákveðnum stigafjölda í fjölþraut ernáð. Með því að fá þrep viðurkennt hefur keppandi formlega lokið þrepinu. Ber honum þá að færast upp um eitt þrep á næsta keppnistímabili.Einungis er hægt að fá þrep viðurkennt með stigum í fjölþraut á mótum á vegum FSÍ. Það er á Haustmóti, Þrepamóti, Bikarmóti og Íslandsmóti íþrepum.
Þess má helst geta að þrepin eru að einhverju leiti erfiðari en þau hafa verið undanfarinn áratug, auk þess sem ákveðinn hámarksaldur keppenda er í hverju þrepi. Er það gert með það að markmiði að eðlileg aldurskipting eigi sér stað í hverju þrepi fyrir sig og til þess að stuðla að markvissri grunnþjálfun iðkenda. Er þetta fyrirkomulag með aldurshámark til reynslu og verður endurskoðað fyrir gerð næsta fimleikastiga.
Markmið með skylduæfingum karla FSÍ1. Að vera leiðbeinandi afl í fimleikum karla á Íslandi, bæði í vali á æfingum og samsetningum æfinga.2. Að auka breiddina í fimleikum á Íslandi.3. Að skapa réttlátan samkeppnis grunn í keppni í áhaldafimleikum.4. Að það verði eðlilegur stigs munur á milli þrepa og að það taki að meðaltali tvö ár að ná hverju þrepi.5. Að undirbúa keppendur fyrir keppni í frjálsum æfingum.
Dómgæsla D-einkunn (upphafseinkunn) á öllum áhöldum í öllum þrepum, nema 1. þrepi, er 16,0 séu allar æfingar framkvæmdar og gildar. Undantekningar erustökk í 2. þrepi þar sem mismunandi stökk hafa mismunandi upphafseinkunn. Stökk í 5. þrepi þar sem framkvæmd eru tvö mismunandi stökk oggildir hvort stökk 8,0 eða samtals D-einkunn 16,0. Bogahestur í 4. og 3. þrepi þar sem framkvæmdar eru tvær mismunandi æfingar, annars vegar ábogahesti og hins vegar á sveppi. Æfingarnar gilda hvor fyrir sig 8,0 eða samtals D-einkunn 16,0. Einungis lokaeinkunn er sýnd á mótum FSÍ.Starf dómara í 2.-6. þrepi felst í að ákvarða D-einkunn (upphafseinkunn) og frádráttarpunkta í framkvæmd æfinga sem dragast frá D-einkunn. Lokaeinkunn keppanda í 2.-6. þrepi verður ”D - frádráttarpunktar = lokaeinkunn”. Hámarkseinkunn á hverju áhaldi í hverju þrepi:6. þrep 16,05. þrep 16,04. þrep 16,03. þrep 16,02. þrep 16,0 (17,0 á stökki)1. þrep engin hámarkseinkunn
Leyfilegur hámarksaldur keppanda í hverju þrepi og stigafjöldi í fjölþraut til þess að öðlast viðurkenningu: 6. þrep. Ekkert aldurshámark. Ekki er keppt í 6. þrepi á FSÍ mótum. Þrepið fæst ekki viðurkennt.
5. þrep. Hámarksaldur 10 ára. Viðurkennt með 87,0 stig eða meira. (Endurskoðað í maí 2010)
4. Þrep. Hámarksaldur 12 ára. Viðurkennt með 86,0 stig eða meira. (Endurskoðað í maí 2010)
3. Þrep. Hámarksaldur 14 ára. Viðurkennt með 85,0 stig eða meira. (Endurskoðað í maí 2010)
2. Þrep. Hámarksaldur 16 ára. Viðurkennt með 84,0 stig eða meira. (Endurskoðað í maí 2010)
1. Þrep. Hámarksaldur 18 ára. Viðurkennt við 18 ára aldur eða þegar viðkomandi hefur keppni eftir almennum reglum FIG.
Á Íslandsmóti í þrepum er keppt í öllum þrepum stigans nema 6. þrepi. Fjöldi keppenda á mótið er takmarkaður. Við val á keppendum á Íslandmótí þrepum er farið eftir einkunum í fjölþraut á Þrepamóti og Bikarmóti í þrepum. Valið er óháð aldursflokki keppanda og öðlast stigahæstukeppendurnir eftir þessi tvö mót þátttökurétt. Einn og sami einstaklingur getur ekki unnið Íslandmeistaratitil oftar en einu sinni í sama þrepi, þó aðhann hafi ekki færst upp um þrep. Sá er hlýtur Íslandsmeistaratitil öðlast því ekki keppnisrétt á Íslandsmót aftur í sama þrepi.Fjöldi keppenda á Íslandsmóti í þrepum er eftirfarandi:
1. þrep. 6 stigahæstu keppendur í fjölþraut eftir keppni á Þrepamóti og Bikarmóti öðlast þátttökurétt.
2. þrep. 6 stigahæstu keppendur í fjölþraut eftir keppni á Þrepamóti og Bikarmóti öðlast þátttökurétt.
3. þrep. 8 stigahæstu keppendur í fjölþraut eftir keppni á Þrepamóti og Bikarmóti öðlast þátttökurétt.
4. þrep. 10 stigahæstu keppendur í fjölþraut eftir keppni á Þrepamóti og Bikarmóti öðlast þátttökurétt.
5. þrep. 12 stigahæstu keppendur í fjölþraut eftir keppni á Þrepamóti og Bikarmóti öðlast þátttökurétt.
Á Bikarmóti í þrepum er keppt í öllum þrepum stigans nema 6. þrepi. Keppandi á Bikarmóti í þrepum getur einungis keppt með einu liði í einuþrepi. Tænkinefnd karla áskilar sér rétt til að heimila þátttöku gestakeppenda á Bikarmóti í þrepum vegna vals á keppendum til þátttöku á Íslandsmótií þrepum. Keppandi í þrepum hefur ekki rétt til að keppa á Bikarmóti í frjálsum æfingum samhliða keppni í þrepum.
Keppnisfyrirkomulag Bikarmótsí þrepum:
1. þrep. 5-5-3 - 5 keppendur í liði. 5 keppendur úr liði keppa. 3 keppendur telja til stiga
2. þrep. 5-5-3 - 5 keppendur í liði. 5 keppendur úr liði keppa. 3 keppendur telja til stiga
3. þrep. 6-6-4 - 6 keppendur í liði. 6 keppendur úr liði keppa. 4 keppendur telja til stiga
4. þrep. 6-6-4 - 6 keppendur í liði. 6 keppendur úr liði keppa. 4 keppendur telja til stiga
5. þrep. 6-6-4 - 6 keppendur í liði. 6 keppendur úr liði keppa. 4 keppendur telja til stiga
Árið 1985 var byrjað að keppa í hinum íslenska fimleikastiga en árin á undan var keppt í norska fimleikastiganum sem skipt var upp í 12 þrep.Íslenski fimleikastiginn tók upphaflega mið af hinum alþjóðlegu skylduæfingum en árið 1996 voru þær skylduæfingar lagðar niður. Tækninefndirkarla FSÍ, sem að öllu jöfnu bera ábyrgð á hönnunn stigans, hafa því síðan þá miðað þrep hins íslenska fimleikastiga við þróun fimleika bæði á landsvísu og á alþjóðavettvangi. Íslenski fimleikastiginn var upphaflega í fjórum þrepum. Það fjórða var léttast og það fyrsta erfiðast. Lengi vel var aðeins keppt í þriðja og fjórða þrepi stigans en þróun stigans og fjölgun iðkenda í fimleikum karla hefur gert það að verkum að síðustu árin hefur verið keppt í öllum þrepum stigans sem í dag eru formlega 5 talsins.
Uppfćrt: Inga Stella - miđ 3.feb 2010
Leit

Nýtt á vefnum
Heimsóknir
Samtals: 311519